Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.

Heldur myndlistarsýningu 85 ára gömul
09/02/2021Steinunn Marteinsdóttir, Mosfellingur með meiru, heldur næstu sýningu í Listasal Mosfellsbæjar í tilefni 85 ára afmælis síns 18. febrúar. Hún hefur unnið að myndlist í marga áratugi og er einn helsti leirlistarmaður landsins. Steinunn hefur síðustu ár lagt stund á málun í vaxandi mæli.
Sýning Steinunnar í Listasal Mosfellsbæjar nefnist JÖKULL – JÖKULL og er þetta yfirlitssýning af jöklamyndum sem listakonan málaði á árunum 1986-2019. Jökullinn, ekki síst Snæfellsjökull, hefur lengi verið sterkt þema í verkum Steinunnar. Í sýningarskrá stendur að jökullinn sé Steinunni einskonar aflvaki og kjölfesta í listsköpun; tákn um þrá, ákall og markmið.
Fyrsti sýningardagur er föstudagurinn 12. febrúar og lýkur sýningunni 12. mars. Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar. Hann er opinn kl. 12-18 á virkum dögum og kl. 12-16 á laugardögum. Bent er á að ekki verður formleg opnun vegna Covid-19.
Til bakaSýning Steinunnar í Listasal Mosfellsbæjar nefnist JÖKULL – JÖKULL og er þetta yfirlitssýning af jöklamyndum sem listakonan málaði á árunum 1986-2019. Jökullinn, ekki síst Snæfellsjökull, hefur lengi verið sterkt þema í verkum Steinunnar. Í sýningarskrá stendur að jökullinn sé Steinunni einskonar aflvaki og kjölfesta í listsköpun; tákn um þrá, ákall og markmið.