Þjónusta
Almenningsbókasöfn og þjónusta þeirra
Gjaldfrír griðastaður.
Almenningsbókasöfn eru athvarf þar sem almenningur getur komið á eigin forsendum, leitað þekkingar, sökkt sér niður í viðfangsefnið og fundið ró í erli hversdagsins.
Almenningsbókasöfn eru síðasta gjaldfría athvarf samtímans, “þriðji staðurinn”, þar sem einstaklingurinn losnar undan áreiti umhverfisins. Þar geta menn fundið rætur sínar, sögu og sjálfsmynd.
Á almenningsbókasöfnum hittist fólk þvert á aldur, menningu, menntun og félagslega stöðu. Ekki er farið í manngreiningarálit í þjónustu safnsins. Þar býðst Mosfellingum aðgengi að bókmenntum, sögu, fræðslu, listum og afþreyingu.
Til staðar er tækni sem auðveldar almenningi aðgang að Interneti og opnar augun fyrir fjölbreytni og veitir alþjóðlega sýn.
Fræðslu- og ævintýraheimur barna.
Bókasöfnin opna börnum ævintýraheim og örva lestrargetu þeirra og áhuga á yndislestri. Mikilvægt er að kynna þeim þá þjónustu sem þau eiga aðgang að í bókasafninu. Kennsla í heimildaleit og upplýsingalæsi, á bók, blaði eða í gagnagrunni á netinu, svo og úrvinnsla heimilda, er undirstaða frekara náms.
Bókasafn Mosfellsbæjar
Hringiða
Í kreppunni hefur aðsókn aukist og hópurinn breikkað sem notar safnið. Bókasafnið býður nýtt fólk velkomið.
Starfsemi og þjónusta almenningsbókasafna byggir fyrst og fremst á starfsfólki, þekkingu þess, færni og reynslu.
Í Bókasafni Mosfellsbæjar er stanslaust öldurót og þar reynir á samspil sveigjanleika og skipulags. Þar er hringiða menningar, lista og samskipta og oft skemmtilegur erill.
Starfsmenn safnsins eru meðvitaðir um að á erfiðum tímum er þörfin brýn að almenningur eigi athvarf í bókasafninu og geti nýtt sér og notið þjónustu þess. Jafnframt er okkur ljóst að fjármálaaðhald á öllum sviðum er afar mikilvægt. Starfsmenn safnsins, hafa jákvætt viðhorf til starfsins og stofnunarinnar og hafa í huga gildi Mosfellsbæjar - virðingu, jákvæðni, framsækni og umhyggju.
Starfar samkvæmt landslögum og stefnu bæjarins
Bókasafnið og Listasalurinn er menningarstofnun bæjarins. Bókasafnið starfar samkvæmt lögum um almenningsbókasöfn frá 1997 og stefnu bæjarins í menningarmálum.
Bókasafnið þjónustar einstaklinga og stofnanir í Mosfellsbæ, svo og einstaklinga á Kjalarnesi samkvæmt samningum við Borgarbókasafn Reykjavíkur.
Safnefni, útlán og bókasafnsskírteini
Fjölbreytt safnefni er í bókasafninu fyrir alla aldurshópa og er flest til útláns.
Bókasafn Mosfellsbæjar er með sérstaka samninga við Borgarbókasafn um aðgang að safnkosti þess fyrir Mosfellinga og millisafnalán.
Til þess að fá aðgang að safnkostinum þarf bókasafnsskírteini. Skírteinið fæst endurgjaldslaust fyrir börn upp að 18 ára aldri og eldriborgara. Aðrir greiða 1.500 fyrir árskort.
handhafar skírteinis geta fengið að láni bækur, hljóðbækur, tímarit, tónlistardiska og kvikmyndir.
Aðstaða fyrir safngesti
Dagblöðin er hægt að lesa á safninu, svo og það safnefni sem ekki er lánað út.
Safngestir geta fengið sér kaffibolla í boði safnsins meðan þeir tylla sér niður, kíkja í blöð og bækur, eða spjalla.
Þráðlaust net er í safninu og því hægt að komast á netið með eigin fartölvum.
Gegn framvísum skilríkja er hægt að fá aðagang að Internettengdum tölvum í eigu safnsins.
Ekki skólasafn með lestrarsal
Ekki er lestrarsalur fyrir námsfólk í safninu, en 4 lesbásar eru í Netkaffinu sem námsfólk má nýta.
Önnur aðstaða er eingöngu ætluð almenningi. Stundum er útbúin tímabundin aðstaða í fyrir grunnskólanema vegna ritgerðaverkefna í samvinnu við skólana.
Menningartengdir viðburðir
Ungum og öldnum boðið upp á fjölbreytta menningartengda viðburði og fræðslufundi á vegum bæjarins og félagasamtaka.
Bókasafnið stendur fyrir ýmsum menningartengdum viðburðum, ýmist eitt og sér eða í samvinnu við stofnanir bæjarins og einstaklinga. Af og til er safnið lánað undir menningarviðburði sem aðrir standa fyrir.
Samstarf við skóla bæjarins
Náið og gott samstarf er við leik- og grunnskóla bæjarins. Bókasafnið stendur fyrir sögustundum í samstarfi við leikskólana og býður upp á leiksýningar. Öll börn í Mosfellsbæ eru að sjálfsögðu velkomin velkomin á þessa viðburði. Grunnskólanemar koma í safnfræðslu og á bókmennta-/rithöfundakynningar.
Listasalur
Listasalurinn er hluti af Bókasafninu. Ungum og öldnum boðið upp á fjölbreytta menningartengda viðburði og fræðslufundi á vegum bæjarins og félagasamtaka. Boðið er upp á kynningar á straumum og stefnum í myndlist samtímans með fjölbreyttum sýningum. Einnig eru tónleikar af ýmsum toga í salnum.