Listasalur
Opið fyrir umsóknir!
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um sýningarhald í Listasal Mosfellsbæjar á tímabilinu nóvember 2012 til desember 2013. Óskað er eftir umsóknum um einka- og samsýningar.
Listasalur Mosfellsbæjar er fjölnota salur í Bókasafni Mosfellsbæjar og er lánaður endurgjaldslaust til sýnenda.
Fylgja skulu með myndir af verkum, ferilskrá og lýsing á fyrirhugaðri sýningu.
Nánari upplýsingar og eyðublöð má finna hér
eða í síma 566-6822
Umsóknir skulu vera vandaðar og berast fyrir 4. júní 2012.
Umsóknir sendist til:
Listasalur Mosfellsbæjar, Kjarna
Þverholti 2
270 Mosfellsbæ
eða á póstfang : Listasalur@mos.is
Listasalur Mosfellsbæjar er fjölnota salur í Bókasafni Mosfellsbæjar og hefur verið starfræktur frá 2005. Þar fer fram margvíslegt félags- og menningarstarf eins og myndlistarsýningar, tónleikar, fundir o.fl.
Salurinn er 80 fm að stærð og honum fylgir smáeldhús með vaski og ísskáp, aðgengi að fatahengi og salerni. Einnig geta fylgt salnum borð, 60 stólar og flygill við tónlistarviðburði.
Viðburðir í Listasal sem eru öllum opnir og hafa ekki truflandi áhrif á starfsemi Bókasafnsins geta farið fram á afgreiðslutíma safnsins. Miðist aðgengi að viðburði eingöngu við afmarkaðan hóp er hægt að fá Listasalinn leigðan utan afgreiðslutíma safnsins gegn gjaldi.
Sækja verður um afnot af salnum á sérstökum eyðublöðum sem fást í Bókasafninu og ábyrgðarmaður tiltekins viðburðar fyllir út og undirritar