BÓKASAFN - Hundar sem hlusta
20/02/2017Laugardaginn 25. febrúar 2017 frá kl. 13.00 -14.20.
Til bakaÍ samstarfi við félagið Vigdísi - Vini gæludýra á Íslandi býður Bókasafnið börnum að koma í safnið og lesa sér til ánægju fyrir hunda, sem sérstaklega eru til þess þjálfaðir.
Þetta er í fyrsta sinn sem Bókasafn Mosfellsbæjar býður upp á þessa samveru hunda og barna.
Lesturinn fer fram í „Fiskabúrinu“ þ.e. gamla þjónustuverinu í Kjarna, en gengið er inn um aðalinngang safnsins.
Þeir sem hafa áhuga þurfa að bóka tíma fyrirfram með því að senda tölvupóst á Ásdísi, asdisg@mos.is eða hringja í síma 566 6822 milli kl. 8.30 og 17. Tímar sem eru í boði eru klukkan: 13.00, 13.20, 13.40 og 14.00.