Tölvur og internet

Clipart-Cartoon-Design-12.gifÍ bókasafninu er svokallaður heitur reitur (þráðlaust net).
Viðskiptavinir safnsins geta ýmist komið með sínar eigin tölvur og tengst Internetinu gjaldfrítt eða fengið aðgang að sérstökum tölvum í eigu safnsins.

Viðskiptavinum safnsins, 15 ára og eldri, er heimill aðgangur að Internettengdum tölvum safnsins í allt að 60 mínútur í senn gjaldfrítt. Framvísa þarf bókasafnsskírteini eða persónuskilríkjum.

Ein leitartölva fyrir almenning er tengd beint við bókasafnskerfið Gegni.