HUXI! - Taka tvö opnar á morgun, föstudaginn 17. febrúar milli 16 og 18

16/02/2012


Kæru listunnendur.

Á morgun, föstudaginn 16.febrúar kl. 16-18, verður opnaður síðari hluti sýningarinnar HUXI!

Þá hafa nemendur úr 10. bekk Lágafellsskóla og Varmárskóla sett upp verk sem þeir hafa unnið undir áhrifum frá verkum Hugleiks og Arnar á sýningunni.

Við hvetjum alla til að kíkja inn og sjá upprennandi listamenn sýna verk sín.

Lokadagur sýningarinnar er 25. febrúar, opið á afgreiðslutíma Bókasafns Mosfellsbæjar.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.


Nánari upplýsingar er að finna á www.bokmos.is eða í síma 5666822



Stikkorð:

« Til baka