Aflýst - Hundar sem hlusta í Bókasafni Mosfellsbæjar
28/03/2020Bókasafn Mosfellsbæjar í samstarfi við félagið Vigdísi – Vini gæludýra á Íslandi, býður börnum að heimsækja safnið þann 28. mars og lesa sér til ánægju fyrir hunda sem eru sérstaklega þjálfaðir til að hlusta á börn lesa.
Lestrarstundir með hundi reynast börnum vel og ekki síst þeim sem eiga við lestrarörðugleika að stríða. Hundurinn gagnrýnir ekki barnið á meðan á lestrinum stendur, hjálpar því að slaka á og liggur rólegur á meðan lesið er. Sjálfboðaliðinn sem á hundinn ræðir síðan við barnið um innihald bókarinnar til að aðstoða og tryggja betri lesskilning.
Tveir hundar verða á staðnum og komast sex börn að í hvert skipti. Hvert barn fær að lesa fyrir hundinn í 15 mínútur. Hundarnir og eigendur þeirra hafa fengið sérstaka þjálfun til að sinna verkefninu.
Bóka þarf tíma fyrirfram fyrir börnin með því að senda tölvupóst á evadogg@mos.is. Tímar sem eru í boði: 12:30, 12:50 og 13:10.
Gott er að barnið hafi valið sér texta til að lesa.