Mikil aðsókn
19/09/2016Sýningunni SMIÐUR EÐA EKKI lauk í Listasalnum á laugardaginn. Sýningarhönnuðurinn Birta Fróðadóttir arkitekt, bauð upp á leiðsögn og sótti fjöldi manns sýninguna þennan dag. Raunar hefur verið mjög góð aðsókn að sýningunni og gestir gjarnan sest niður og horft á skyggnusýninguna.
Það hefur verið mikil ánægja með þessa sýningu og gaman að geta gert Birtu Fróðadóttur, innahússarkitekt og smið, skil með þessum hætti og á nafna hennar og barnabarn hrós skilið fyrir verkið.