logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Hægt að panta safnefni

19/10/2020
Bókasafn Mosfellsbæjar verður áfram lokað til 17. nóvember, en nú gefst kostur á að panta safngögn á leitir.is og sækja í safnið.
Þú finnur bókina, tímaritið, bíómyndina eða annað og tekur frá á leitir.is, sjá leiðbeiningar: Frátekt/pöntun
Við hvetjum notendur til að panta á leitir.is, en sjálfsagt er að hringja í síma 566 6822 eða senda tölvupóst á bokasafn@mos.is og fá aðstoð.
Við sendum þér sms þegar safngögnin eru tilbúin og þau bíða þín í merktum poka við inngang safnsins milli 10:00 og 17:00.
Athugið að safnið er lokað og þjónusta er eingöngu í boði á virkum dögum.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira