logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Áfram Sumarlestur!

05/07/2019
Fyrsta fimmtudag í júní, júlí og ágúst í sumar er hittingur í Bókasafninu kl. 14.00 fyrir sumarlestrarkrakkana. Við spjöllum, leysum þrautir, drögum út happdrættisvinninga og lesum fyrir krakkana.
Fimmtudaginn 4. júlí kom hópur krakka og tók þátt. Vinningshafar í happdrættinu voru Emilía Rán, Sóldís Lilja og Edda. Næst hittumst við fimmtudaginn 1. ágúst kl. 14.00.

Þegar hafa 360 krakkar skráð sig í Sumarlesturinn og enn er hægt að skrá sig til leiks.

Áfram Sumarlestur!
Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira