logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Hundar sem hlusta í Bókasafni Mosfellsbæjar - laugardaginn 13. október 2018

24/09/2018
Í samstarfi við félagið Vigdísi - Vini gæludýra á Íslandi býður Bókasafnið börnum að koma í safnið og lesa sér til ánægju fyrir hunda. Hverju barni býðst að lesa í u.þ.b. 20 mín. Gott er að barnið hafi valið sér bók eða texta til að lesa.Tveir hundar verða á staðnum þannig að tvö börn geta lesið samtímis, en einungis sex börn komast að. Félagið Vigdís er aðili að lestrarverkefninu R.E.A.D – Reading Education Assistance Dogs sem starfar um allan heim með mörg þúsund sjálfboðaliða. Lestrarstundir með hundi hafa reynst vel, einkum þeim börnum sem eiga við lestrarörðugleika að etja. Hundurinn liggur rólegur meðan lesið er og það hjálpar barninu að slaka á. Sjálfboðaliðinn, eigandi hundsins, ræðir síðan við barnið um innihald sögunnar til að tryggja betri lesskilning.

Þeir sem hafa áhuga þurfa að bóka tíma í afgreiðslu safnsins sem fyrst.  Einnig er hægt að senda tölvupóst á bokasafn@mos.is. Tveir fyrstu tímarnir hefjast kl. 13.00.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira