Útlánareglur
Skírteini
-Framvísa þarf eigin bókasafnsskírteini til að fá lánað safnefni.
-Við kaup á skírteini ber að sýna persónuskilríki.
-Skírteini gildir einnig í Borgarbókasafni og Bókasafni Seltjarnarness.
-Verð á skírteini fer eftir gjaldskrá.
-17 ára og yngri, ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá skírteini endurgjaldslaust.
-Glatist skírteini ber að tilkynna það.
-Lánþegi/ábyrgðarmaður er á allan hátt ábyrgur fyrir þeim gögnum sem tekin eru að láni gegn skírteini hans.
-Hægt er að panta bækur frá Borgarbókasafni og Bókasafni Seltjarnarness.
Lánstími, nema annað sé tekið fram
Bækur og hljóðbækur: 30 dagar
Tímarit: 14 dagar (nýjustu tölublöð ekki lánuð út).
Myndbönd/dvd: 2 dagar, fræðsluefni 7 dagar
Tónlist og margmiðlunardiskar: 14 dagar.
Dagblöð eru ekki lánuð út.
Handbækur eru merktar með rauðum depli á kili. Þær eru ekki til útláns og engöngu til afnota á safninu.
Skemmri útlán gilda um nýjar handbækur, námsbækur og bækur sem eru eftirsóttar tímabundið. Þær eru merktar sérstaklega, m.a. með gulum depli á kili.
Vanskil
Fyrir hvern dag umfram skiladag greiðist sekt samkvæmt gjaldskrá.
Rukkunarbréf eru send út þrisvar eftir síðasta skiladag. Ef þau bera ekki árangur fer málið til innheimtuþjónustu.