Barna- og unglingastarf

 

Untitled.jpgBarna- og unglingastarf Bókasafns Mosfellsbæjar er fjölbreytt, bæði í samstarfi við aðrar stofnanir bæjarins og á vegum safnsins sjálfs.

Öll börn fá ókeypis skírteini til 18 ára aldurs. Allar útgefnar barna- og unglingabækur á íslensku eru keyptar í safnið. Einnig eru keypt fjölmörg íslensk og erlend tímarit, kvikmyndir og tónlist fyrir börn og unglinga.

 Í samstarfi við Heilsugæsluna er öllum börnum sem koma í þriggja og hálfs árs skoðun gefin bókin “Stafakver” eftir Þórarin og Sigrúnu Eldjárn.

Samstarfið við leikskóla bæjarins er talsvert og gott.

Sögustundir eru fyrir leikskólabörn í fyrirfram pöntuðum tímum og leikskóladeildir í koma heimsókn til að fá bækur að láni.

Árlega er öllum fimm ára börnum bæjarins boðið á jólaleikrit og fjögurra ára börnum er boðið á leiksýningu í tengslum við „Í túninu heima“.

Samstarf við grunnskólana hefur ætíð verið mikið og gott.

6 ára nemendur eru heimsóttir í skólann. Þeir fá kynningu á safninu og boðsbréf um að fá eigið lánþegaskírteini.
3. bekkingar koma í safnkynningu og verkefnavinnu og 4. og 7. bekkingar koma í samsvarandi heimsóknir.
5. bekkingar koma í kynningu þar sem rithöfundur les úr verkum sínum og spjallar við nemendur.
7. bekkingar Varmárskóla koma í kynningu á léttlestrarbókum og teiknimyndasögum á ensku.
10. bekkingar koma að vori og hlusta á erindi Úlfhildar Dagsdóttur um myndasögur.

Sumarlestur fyrir börn í 1., 2., 3. og 4. bekkjum hefst í júní og lýkur með uppskeruhátíð í ágúst.

Börnum gefst kostur á að taka þátt í vali á bestu barnabók ársins og yngri lánþegum býðst að taka þátt í bókmenntagetraunum.

Eldri nemendur skólanna koma í heimildaleit og ritgerðavinnu.

Nemendur í myndlistarvali hafa haldið árlega sýningu á verkum sínum í Listasalnum og nemendur  í Varmárskóla hafa komið á myndlistarsýningar í Listasalnum með það fyrir augum að vinna verkefni í tengslum við það.